Viskýin frá William Grant hafa lengi þótt góður kostur fyrir þá sem vilja kaupa blandað viský á góðu verði. Bragðstyrkur í meðallagi, þar sem hunang, ávextir og bygg eru í forgrunni. Einnig keimur af eik,mó og lakkrís í vel samsettum hlutföllum. Grant´s viskýið er ekki síst þekkt fyrir umbúðirnar, þríhyrnd glerflaska hefur verið einkennismerki í bráðum 60 ár.